06.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1730 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

133. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Bjarni Jónsson:

Mér þykir það undarlegt, að háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) er jafnan farinn úr salnum, er eg tek til máls, kemur svo og segist hafa heyrt hitt og þetta eftir mér.

Hann taldi, að það væri grýla í mínum hug, að vafasamt væri um samþykki Dana. Eftir meðferð Dana á Grænlendingum, má vera vafi á því.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) spyr að því, hvort vér höfum samið við Kanada. Þar til er því að svara, að ef Bretar og Íslendingar koma sér saman um loftskeytasamband sín í milli, er enginn, sem aftrað getur því. Öðru máli er að gegna um það, ef millistöð er í milli,

t. d. á Grænlandi, þá kemur til samþykkis þriðja ríkisins. Til þessa er máttuleiki, svo sem sýnt hefi eg, og er varlegra að hafa vaðið fyrir neðan sig.

Það er nýtt, sem sjaldan skeður, að eg skuli einu sinni vera á sama máli sem háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.). Eg tek undir með honum um það, að málið er óundirbúið. Eg sé hvergi, hvað stöð á Grænlandi eigi að kosta, né heldur hvar standa eigi, norður á Hvítserki eða í mannabygðum, og gerir það mikinn mun, því að ekki er hólminn lítill. Sjónhending til Hellulands eftir kortinu munar ¼ til ? vegalengdin að lengri sé héðan þangað en til Noregs á sama breiddarstigi sem Reykjavík er á. Þar á milli eru 4½ lengdarstig, 4 vestur á móts við Helluland jafn norðarlega, en það liggur sunnar og lengist við það vegurinn. Helluland er á 50. stigi norðurvíddar, en Reykjavík á 63½ til 64. stigi. Eg er ekki viðbúinn að reikna þetta nákvæmlega, en svo er þetta eftir auganu. Ef þessi leið er valin getur kostnaðurinn ekki orðið helmingi meiri. Eg játa það, að eg er jafn óviðbúinn að setja upp nákvæma áætlun sem nefndin. Eg hygg skaðlaust að láta málið bíða næsta þings.

Háttv. 1. þm. S-Múl. (J. J.) hélt eina af sínum refsiræðum. Hann sagði, að loftskeytamenn spiltu fyrir sér með því, að þola ekki að heyra nefnda síma. Má á hann heimfæra vísu þá, er kveðin var um Kjartan, er hann flutti Hólmverja til lands:

Mikið færist fang í þú

að færa oss alla héðan.

Mér þykir hann færast mikið í fang, að kalla öll loftskeyti »humbug«. Ekki geta loftskeyti verið meira »humbug« hér en annarstaðar. Hann kvað oss spilla málstað vorum með þeim ákafa, sem vér sýndum gegn símanum til Vestmannaeyja. Vér höldum fast við þann málstað, sem vér erum sannfærðir um að sé góður. Vil eg ekki heyra mér brugðið um flokksofstæki. Óvanur er eg að ráðast á þingæru annara og mega þeir vel láta mína óáreitta. Eg held fast við skoðun mína og og tel betur farið að bíða næsta þings.