22.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1738 í B-deild Alþingistíðinda. (2083)
9. mál, prentsmiðjur
Framsm. minni hl. (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Eg hefi ekki séð þessa nýju brtill. hins háttv. meiri hl. fyr en á þessu augnabliki, og sé þar, að hinn háttv. meiri hluti er farinn að gera brtill. við sínar eigin brtill. Er brtill. á þgskj. 266 aðgengilegri, en tillögurnar í sjálfu nefndarálitinu? Fé það, sem rynni inn fyrir brot á þessum lögum, væri eðlilegast að kæmi mentastofnunum landsins að góðu. Eg hefi landsbókasafnið í huga af því, að það er sífelt í fjárþröng, en það á að varðveita þessi rit og biði því mest tjón af, ef vanræksla væri frá hendi bókaútgefenda. Virðist því sanngjarnast, að það nyti góðs af þessu fé.
Hvað viðvíkur nöfnunum, þá sé eg enga ástæðu til að fara að viðhafa nöfn, sem ekki eru enn þá til, t. d. þjóðbókasafn fyrir landsbókasafn. Land þýðir í íslenzku máli bæði að fornu og nýju alveg sama og ríki, og mun háttv. þm. Dal. (B. J.) geta fallist á að halda þessu nafni. Við höfum hugsað okkur að semja þingsályktun, þar sem skorað væri á landstjórnina, að þar sem landstjórnin þarf að nefna landsbókasafnið og landsskjalasafnið á útlendum málum (t. d. í danskri þýðing fjárlaganna), þar væri viðhöfð nöfnin Nationalbibliotek og Nationalarkiv í stað Landsbibliotek og Landsarkiv. Á útlendu máli getur það haft nokkra þýðingu, þar eð t. d. á dönsku og sænsku þýðir land sama og hérað, en á íslenzku þýðir land sama og ríki, bæði í fornu og nýju máli. (Jón Þorkelsson: Ofmælt hjá þingmanninum). Eg vil leggja það til við hina háttv. deild, að þau sömu heiti og nú eru lögmæt, komi í stað þeirra, sem stungið er upp á á þgskj. 266.