04.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1802 í B-deild Alþingistíðinda. (2159)
37. mál, breyting á fátækralögum
Flutnm. (Ólafur Briem):
Í 63. gr. í fátækralögunum frá 1905 er svo ákveðið, að framfærslusveit sé eigi skylt að greiða nema ? af almennum sveitarstyrk, sem þurfalingi er veittur í dvalarsveit hans. Þetta ákvæði mun hafa verið miðað við framfærslustyrk í eiginlegum skilningi, en ekki við sjúkrahússtyrk, eða kostnað þann, er dvalarsveit
þarf að leggja fram til að leita þurfamanni læknishjálpar á sjúkrahúsi, enda er það ekki alls kostar sanngjarnt, að dvalarsveit sé gert að skyldu að bera ? þess kostnaðar. Þetta ákvæði kemur einkum hart niður á kauptúnum og sjávarplássum, sem hafa sjúkrahús, og þar sem margt er um aðkomumenn. Eg hefi því, eftir áskorun kjósenda minna, leyft mér að fara fram á að því verði breytt, þannig, að allur sjúkrahússtyrkur lendi á framfærslusveitinni.