04.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1803 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)
37. mál, breyting á fátækralögum
Jón Jónsson (1. þm. N. Múl.):
Eg hugsaði, að þá grein fátækralaganna frá 1905, sem nefnd er í þessu frv., væri ekki hægt að skilja svo, að dvalarsveit beri nein skylda til að kosta að þriðjungi dvöl þurfalings annarar sveitar á sjúkrahúsinu. Skal eg, með leyfi háttv. forseta lesa upp nokkur orð úr 77. gr. fátækralaganna. Þar stendur:
»Ef þurfalingur fer eftir læknisráði á sjúkrahús annað en holdsveikraspítala, þá kostar framfærslusveit hans dvöl hans þar, lyf og læknishjálp,« o. s. frv.
Hér finst mér skýrt sagt, að framfærslusveitin skuli borga allan sjúkrahússkostnaðinn. En sé nú svo, að lögin hafi verið skýrð á annan veg, þá er sjálfsagt að samþykkja þetta frv. hins háttv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.), því að mér virðist það alveg rangt, að á dvalarsveitina falli nokkur sjúkrahússkostnaður. En eg fæ ekki séð, að gert sé ráð fyrir því í lögunum.
Eg vildi vekja athygli á þessu, en skal ekki fjölyrða um það frekar.