04.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1803 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)
37. mál, breyting á fátækralögum
Flutnm. (Ólafur Briem):
Útaf orðum hins háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) skal eg taka það fram, að stjórnin hefir úrskurðað, að 77. gr. fátækralaganna eigi engin áhrif að hafa á ákvæði 63. gr. Hvort sem nú þessi skilningur stjórnarinnar er réttur eða rangur, þá hefir úrskurðurinn gildi, og verður honum ekki hnekt, nema með því að breyta lögunum.