10.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1809 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)

37. mál, breyting á fátækralögum

Björn Þorláksson:

Eg skal viðvíkjandi orðum hv. framsm. (J. M.) um meininguna í brtill. minni geta þess, að eg orðaði hana sjálfur, og ætti því bezt að vita, hvað í henni felst. Mín meining var sú, að hér væri að eins um heimild að ræða. Af orðum hv. framsm. (J. M.), að um skyldu væri að ræða, hefi eg ekki getað sannfærst. Hitt kannast eg auðvitað við, að hann er mér fremri í því alment, að skilja hvað liggur í lagagreinum, en hinu mótmæli eg algerlega, að hann skilji betur en eg, hvað meint er með þeim orðum, er eg hefi skrifað eða talað. Þá hefði eg og kunnað betur við, að hann hefði í upphafi bent mér á þetta, svo að mér hefði gefist kostur á að breyta því, ef þörf hefði verið. Nú við 3. umr. er það orðið of seint. Eg er þess fullviss, að ef þessi heimild væri veitt sveitastjórnum, þá mundu margir hreppar, sem talsvert fé hafa til umráða, leggja eitthvað fram til þess að styrkja menn í svona kringumstæðum. Að það nú kemur sjaldan fyrir, stafar einungis af því óbrúklega ákvæði fátækralaganna, að þess konar styrkur skuli reiknast sveitarstyrkur. Mín skoðun er sú, að sveitarstyrk beri að skoða þann styrk, sem mönnum er veittur vegna sjálfráðra athafna þeirra, en menn eigi ekki að gjalda þess, að þeir verði heilsulausir, svo að þeir missi borgaraleg réttindi fyrir það. Það er óeðlilegt, og slíkum lögum á að breyta.