10.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1812 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)

37. mál, breyting á fátækralögum

Jón Jónsson (1. þm. N.-Múl.):

Eg skal játa það, að breyt.till. á þgskj. 601 stefnir í mannúðaráttina og er að því leyti virðingarverð. En eg verð að taka undir það með háttv. framsm. (J. M.), að eg álít ekki rétt, að þingið fari að samþykkja slíka tillögu, sem ekkert hefir verið rædd áður. Eg lít svo á, að þetta geti haft mikla þýðingu fyrir þjóðina í framtíðinni; þetta getur orðið til þess að gefa mönnum undir fótinn að leita styrks úr sveitarsjóði. Það á ekki að ala upp í mönnum þann hugsunarhátt. Það á að vera æzta mark manna að lifa upp á eigin spýtur og vera ekki upp á aðra komnir. Eg vona því, að deildin samþykki ekki þessa tillögu nú, en lofi þjóðinni að taka hana til athugunar.

Um 3. lið breyt.till., að telja fjölskyldumönnum, er 6 börn eiga eða fleiri, styrk úr sveitarsjóði, er þeir fá, ekki sem sveitarstyrk, þá er sama að segja. Það er mannúðleg tillaga, en er varhugaverð og getur ýtt undir fleiri en beint eru þurfandi að leita sér styrks.