06.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (221)

75. mál, stjórnarskrármálið

Sigurður Stefánsson:

Háttvirt deild hefir fyrir sér nefndarálitið og sér af því hver afstaða nefndarinnar hefir verið til málsins, og sé eg því ekki ástæðu til að tala um það frekar.

Allir nefndarmenn, nema háttv. 6. konungkjörinn, leggja það til, að málið sé samþykt, svo þjóðin geti greitt atkvæði um það.