10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1844 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)
65. mál, skipun prestakalla
Flutningsm. (Sigurður Gunnarsson):
Frumvarp þetta er, eins og háttv. þingmenn þekkja, gamalkunnugt hér í háttv. deild. Var það til umræðu hér á síðasta þingi og málið þá sett í nefnd, en vegna þess, að ýmsir háttv. þingmenn dembdu inn í nefndina samskonar frumvörpum úr ýmsum áttum lands, varð niðurstaðan sú, að málið varð ekki útrætt. Auk þess voru margir þingmenn öllum slíkum frumvörpum andvígir, og báru aðallega við auknum útgjöldum fyrir landssjóð.
Það mun, ef til vill, þykja dirfska af mér að koma fram með frumvarp þetta enn á ný, en sú dirfska er sprottin af því, að traust mitt á sanngirni háttv. deildar er svo mikið. Eg vona, að háttv. þingmenn muni átta sig og sjá, að krafa hlutaðeigandi safnaða er einkar sanngjörn, og því í alla staði vert, að styðja hana, en fella ekki.
Ástæðurnar fyrir frumvarpinu eru háttv. þm. kunnar frá síðasta þingi og því óþarft að fjölyrða um þær að sinni. Eg vil að eins taka það enn fram, eins og 1909, að prestakall það, er hér ræðir um, mundi verða eitt hið erfiðasta hér á landi og því ekki rétt að setja fyrir sig dálítinn útgjaldaauka. Milliþinganefnd sú, er sat á rökstólum, áður en prestakallalögin öðluðust gildi, réði alls ekki til sameiningar Staðastaðar- og Miklaholtsprestakalla, en þingið 1907 komst því miður að þeirri niðurstöðu, að svo skyldi gert, og er eg hræddur um, að það hafi verið sprottið af ókunnugleika, eða að öðrum kosti fljótræðisverk. Vona eg nú svo góðs til háttv. deildar, að hún leyfi málinu í nefnd, og vil eg, að umræðu lokinni, stinga upp á 5 manna nefnd.