10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1845 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)

65. mál, skipun prestakalla

Jón Jónsson 1. þm. S.-M.:

Eg er hræddur um að hv. flutnm. (S. G.) þyki eg ekki réttlátari nú en í hitt eð fyrra, þar sem eg álít það algerlega ótímabært að koma nú fram með þetta frv. Prestakallalögin eru ekki gömul og því ástæðulaust að breyta þeim, áður en vissa er fyrir, hvernig þau reynast. En ef fjölgað er prestaköllum á ný á einum stað, munu margir koma á eftir og heimta, að einnig sé fjölgað prestum hjá sér, og eftir þekking þeirri, sem eg hefi í þessu efni — og hún er talsverð, sökum kunnugleika míns á flestum stöðum landsins — þá er ástæða til prestakallafjölgunar á Snæfellsnesi miklu minni en víða annarsstaðar. Eg skal t. d. benda á Austurland. Þar eru prestaköllin mörg afarstór og erfið yfirferðar. Má nefna sem dæmi, að einni kirkjusókn þar, Kirkjubæjarsókn í Hróarstungu, er skift í þrent, þar sem stórvötnin Lagarfljót og Jökulsá renna bæði gegnum sóknina.

Háttv. flutnm. (S. G.) sagði, að prestakallalögunum hefði verið flaustrað af 1907. En þetta er ekki rétt. Eg hefi aldrei verið í neinni nefnd, er betur hefir starfað en nefnd sú, er hafði lög þessi til meðferðar í neðri deild. Þar voru samankomnir menn, er þektu allvel til staðhátta um land alt og nefndin hélt oft 2—3 fundi á dag.

Eg álít, að frv. þetta eigi að falla. En ef það mót von minni skyldi verða samþykt, álít eg mér skylt, vegna kjósenda minna, að koma fram með frumv. um ný prestaköll, samkvæmt rökstuddum óskum kjósenda minna, eitt eða fleira í mínu kjördæmi. Eg býst varla við, að háttv. flutnm. (S. G.) taki frumv. aftur. En verði það ekki felt nú þegar, óska eg að það verði sett í nefnd og vona þá, að hún láti það ekki komast út úr þinginu.