10.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (2218)

65. mál, skipun prestakalla

Flutningsm. (Sigurður Gunnarsson):

Eg heyri að háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) er mér mótfallinn í þessu máli. Hann sagði, að síðasta þing hefði búist við, að stjórnin mundi leggja frv. fyrir næsta þing, en að hún hefði ekki gert það. En eg legg ekki mikið upp úr því, að stjórnin gerði það ekki, þar sem þingið hafði skilið við frv., eins og það gerði. Háttv. þm. sagði einnig, að það væri öfugt að fjölga prestum nú, þar sem stefnan hefði áður verið að fækka þeim. Eg fer alls ekki fram á að prestum verði fjölgað yfirleitt, heldur að eins það, að þingið kippi í lag þeim göllunum, sem allra lakastir eru.

Háttv. þingm. þótti harðleikið af mér, að flytja þetta frv. enn á ný. En má eg spyrja? Er það ekki harðleikið, að gera söfnuðum þeim, er hér eiga í hlut nálega ómögulegt að nota prest sinn? Það er þetta, er vakir fyrir mér og þess vegna álít eg frumv. á fullum rökum bygt.