14.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)
83. mál, kosningaréttur og kjörgengi
Flutnm. (Björn Þorláksson):
Svo sem mönnum er kunnugt, lá hér fyrir fáum dögum fyrir deildinni frv. um rétt kvenna til námsstyrks og embætta og var því vel tekið við 1. umr. og fór nefndarlaust til 2. umræðu; það voru víst að eins einir 2 háttv. þm., sem greiddu atkv. móti því. Í frumv. þessu var mælt svo fyrir, að konur ættu að hafa allar hinar sömu skyldur, sem karlmenn, er að embættisrekstri lyti, og þótti mér það eðlilegt ákvæði. Í frv. því, er nú liggur fyrir deildinni, er stefnt í sömu átt. Samkvæmt gildandi lögum, hafa konur rétt til að skorast undan kosning í hreppsnefndir og bæjarstjórnir. En allar slíkar undanþágur tel eg óheppilegar, því að öllum réttindum eiga jafnan að fylgja skyldur, annars kemur fram misrétti; konur eru því nú rétthærri en karlmenn, og er það ósanngjarnt. Eg er því sannfærður um, að allir þeir, sem eru kvenréttindamálinu mótfallnir, hljóta að vera samþykkir því, að slíkt ákvæði falli í burtu. En frá sjónarmiði þeirra, sem vilja styðja að auknum kvenréttindum, er það og mjög óeðlilegt og óheppilegt, að þessi undanþága haldist, því að hún miðar ekki til þess að auka skyldutilfinning kvenna, né gera þær hæfari til þess að taka þátt í opinberum málum. Eg minnist þess, að þegar sveitarstjórnarlögin gengu í gildi fyrir 40 árum, og hreppsnefndir komu í stað hreppstjóranna, sem áður voru, þá var mörgum illa við þetta nýmæli, og reyndu að smeygja sér hjá því að komast í hreppsnefnd, með því að láta unga syni sína, sem voru innan 25 ára, taka við búi. Á þann hátt völdust lakari menn í hreppsnefndir, en ella mundi orðið hafa. Eg lít nú svo á, að svipaðar afleiðingar muni verða af hinu umrædda ákvæði gildandi laga, nefnilega að margar konur, — og það jafnvel hinar beztu konur, — muni nota sér réttinn til að skorast undan kosningu, en í þeirra stað mundu svo komast að þær, sem framgjarnari eru og meira hafa sjálfstraust. En framgirni og sjálfstraust er engin trygging fyrir hæfileikum manna, hvorki kvenna né karla. Frá sjónarmiði þeirra manna, sem efla vilja kvenfrelsið, er því sjálfsagt að fella þetta ákvæði úr gildi. Það er mikils um vert, að konur fái sem fyrst það orð á sig, að þær séu hæfar til slíkra starfa, en þá verður að reisa skorður við því, að hinar beztu konur geti dregið sig í hlé; enda er mér kunnugt, að margar góðar konur líta svo á þetta mál. Skyldan á altaf að fylgja réttinum, þá verður tilfinningin fyrir ábyrgðinni miklu næmari. — Eg hygg, að þetta mál sé svo einfalt, að ekki þurfi að skipa nefnd í það, og vona að það geti gengið orðalaust og hljóðalaust til 2. umr.