17.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (224)
118. mál, almenn viðskiptalög
Lárus H. Bjarnason:
Mér þykir leitt, að ráðherra skuli vera á förum úr deildinni. Eg hefði gjarnan viljað að hann hefði hlustað á mál mitt, og vona að minsta kosti að hann skelli ekki hurðinni í lás á eftir sér, eins og honum verður stundum á. — Árið 1909 var það talið afsökun stjórninni, hversu nauman tíma hún hefði haft til að undirbúa lögin. Nú eru ekki sömu afsökun til að dreifa; nú hefir stjómin sannarlega haft nægan tíma. Liggur því nærri að athuga, hvernig sá tími hefir verið notaður og líta á þau frv., sem hafa verið lögð fram. Þau eru æði mörg, 24 talsins, svo að ekki er hægt að athuga þau öll, enda er það skemst af að segja, að þau frv., sem eru ný, eru ónýt eða lítt nýtileg, en þau, sem eru nýtileg, eru ekki ný. Meðal þeirra, sem ný eru og ekki nýtileg skal eg nefna fræðslufrv. og frv. um færslu þingtímans. Eitt af þeim frv. sem verða að teljast nokkuð nýtileg, er þetta, sem nú liggur fyrir. Enda á hæstv. stj. lítið í því. Það er lán frá „dönsku mömmu“, er þýðing af dönsku lögunum frá 6. apríl 1906. Það eina sem hæstv. ráðh. hefir lagt til frá eigin brjósti, athugasemdin um að ekkert ákvæði sé til í ísl. lögum líkt dönsku lögunum frá 6. apríl 1855, er rangt, því að til eru lög frá 27. maí 1859, um þetta efni, og hefðu lögskipaðir meðráðamenn hæstv. ráðh. í stjórnarráðinu getað sagt honum þetta, ef hann hefði látið svo lítið að leita þeirra. Að öðru leyti er frv. nálega eingöngu afskrift af frv. nefndar í n. d. á síðasta þingi, svo að ráðherra hefir sannarlega ekki haft mikið fyrir því. Frv. er gott að mörgu leyti. En eins og allir vita, þá eiga lög að fara eftir sérháttum hvers lands, á líkan hátt eins og föt eiga að laga sig eftir líkamanum, sem á að bera þau. Þó einhver lög hæfi annarstaðar, er ekki þar með sagt, að þau hæfi hér. Hitt er satt, að það er hagfelt fyrir þennan litla hólma, „hjáleiguna“, að geta notað sér góð lög frá öðrum löndum. En þar eð stjórnin hefir ekki athugað frumvarpið neitt, þá verður deildin að vinna hennar verk og athuga það í nefnd. Eg vil stinga upp á að 5 manna n. verði kosin að
lokinni umr., til að íhuga frv.