11.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)
134. mál, barnafræðsla
Flutnm. (Jón Jónsson N.-Múl.):
Út af ummælum háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) um að fræðslusamþyktir væru víðast komnar á, þá er ekki svo alstaðar, þar sem fræðslunefndir eru þó komnar. Eg get bent á dæmi um það austan úr Fljótsdalshéraði. Þar var komin fræðslunefnd, kennari ráðinn, en vantaði fræðslusamþykt. Eftir úrskurði fræðslumálastjórans varð að borga kostnaðinn úr sveitarsjóði, þótt efamál sé um, hvort þetta sé rétt. Ef víðar er farið svona að, álít eg lögin mjög bagaleg. Það er ómildilega að farið að beita lögunum bæði með góðu og illu, hvort sem mönnum er ljúft eða leitt.
Eg heyri, að háttv. 2. þm. S.Múl. (J. Ól.) segir, að það sé sjálfsagt. Eg hélt, að hann væri frjálslyndari maður en svo, að hann vildi þvinga menn til að búa við slík lög.
Eg vil taka það fram, til að fyrirbyggja allan misskilning, að það er ekki meiningin hjá mér að draga úr framkvæmd laganna á þeim stöðum, þar sem þau eru þegar komin á, heldur að eins fresta þeim, þar sem þau eru ekki komin á.