19.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1879 í B-deild Alþingistíðinda. (2266)
134. mál, barnafræðsla
Hálfdan Guðjónsson:
Háttv. þm. Vestm. (J. M.) sagði, að ekkert hefði verið nýtt né nýtilegt í því sem eg sagði. Um það ætla eg ekki að deila við hann En á það vil eg minna hann, að þótt hann sé dómari, þá er hann enginn hæstiréttur í þessu efni, hvorki að þekkingu né reynslu, sem ekki er heldur við að búast. Er honum því vorkunn, þó að orð hans séu eins og töluð úti á þekju. Mér finst það einkennileg röksemdaleiðsla hjá háttv. andmælingum, að ekki megi fresta lögunum vegna þeirra, sem farnir eru að framkvæma þau og eru óánægðir. Mér skilst ekki, að það bæti neitt úr skák fyrir þeim, þótt öðrum sé þröngvað nauðugum til hins sama, sem þeir sjálfir eru óánægðir með. Hygg eg þvert á móti, að miklu skynsamlegra sé að lofa mönnum að átta sig og undirbúa sem bezt, áður en þeir ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir laga þessara, án nauðsynlegrar og nægilegrar þekkingar á því, hvernig öllu megi sem bezt haga, svo að það verði að sem fyllstum notum.