21.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1890 í B-deild Alþingistíðinda. (2282)

8. mál, lögheiti á stofnunum

Flutnm. (Benedikt Sveinsson):

Mér kemur það á óvart, að virðul. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) skuli taka svo óstint í þetta mál, því að hann hefir oftast tekið í þann strenginn, er betur gegndi um íslenzka tungu og lagfært ýmislegt í málinu.

Virðul. þm. drap á, að breyta mætti nöfnunum í fjárlögunum, og gat þess, að svo hefði verið gert um landsbókasafnið 1881. Það er að vísu fær vegur að breyta nöfnunum í fjárlögunum, en efamál, hvort sé fyllilega löglegt, og er það meðal annars athugandi í nefnd.

Viðvíkjandl landsbankanum hélt v.l. þm. að nafnaskifti mundu spilla fyrir viðskiftum bankans utanlands. En viðskifti bankans eru ekki svo margbreytt né við svo margar stofnanir utanlands, að það væri neinum vandkvæðum bundið fyrir bankann að tilkynna skiftavinum sínum nafnsbreytinguna. Það væri einnig síður en svo, að vegur bankans yrði minni, ef hann héti þjóðbanki (Nationalbank) í stað landsbanki, að slíkt mundi einmitt auka álit hans í útlöndum. Auk þess er það óheppilegt, að báðir bankarnir hér skuli heita nálega sama nafni, og er það eitt með öðru, sem styður breytinguna. Þessi samnefni bankanna, »landsbanki íslands« og »íslands banki« hafa oft valdið ruglingi og misskilningi utanlands, einkum framan af, enda var heitið á »Íslands banka« tekið upp fyrst meðan sú var tilætlunin, að hann yrði einn banki hér á landi og hinn yrði lagður niður, en nafnið hélzt síðan óbreytt, þótt landsbankinn stæði. Nú er tækifærið til þess að afstýra öllum ruglingi, er leitt getur af þessum líku heitum bankanna.

Það er satt, að »allsherjar féhirzla Íslands« er ekki sem viðkunnanlegast heiti, og mætti vafalaust finna heppilegra nafn.

Það er rétt, að »land« hefir oft sömu merkingu sem »ríki« í íslenzku, einkum að fornu fari, en munurinn kemur glögglegast fram, þegar orðinu er snúið á útlendar tungur, eins og eg tók áður fram.

Að lokum vil eg endurtaka þá ósk, að háttv. deild kjósi nefnd í málið, sem vinni að því að ráða því til heppilegra lykta.