19.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1922 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)
132. mál, stofnun húsmæðraskóla
Björn Sigfússon:
Það getur verið að eg hafi ekki tekið nógu skýrt fram áðan skoðun mína á 8. gr. frv. En þó að gr. kveði að eins á um heimild fyrir landssjóð til þess að reka búið á jörðinni á eigin kostnað, ætti það eigi að síður ekki að standa í frv. Það sem heimilað er með lögum, má altaf búast við að verði framkvæmt, hversu óheppilegt sem það er. Það er engin hætta á að þessi jörð byggist ekki með aðgengilegum skilmálum, og finst mér stjórninni treystandi til að sjá um það. Ef landssjóður ætti að reka búið á sinn kostnað, mætti ekki selja búið, eða nokkurn hluta þess. En eg vil að búið sé selt, svo að landssjóður eigi ekkert á hættu.
Að því er stjórn skólans snertir, er eg samþykkur því, er háttv. 2. þm. N.-Múl. (Jóh. Jóh.) tók fram um hana. Það er einnig annar vegur hugsanlegur og er hann sá, að 3 menn væru í stjórninni, auk forstöðukonu skólans, og væri 1 þeirra kosinn af Norður-Múlasýslu, 1 af Suður-Múlasýslu og 1 af Búnaðarfélagi Íslands.
Þessu vildi eg skjóta fram til athugunar.