01.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í B-deild Alþingistíðinda. (232)

125. mál, eiðar og drengskaparorð

Ráðherra (Kr. J.):

Það er alveg rétt, sem hv. 5. kgk. þm. sagði, að það er ekki að eins ervitt heldur má kalla það ómögulegt, að sanna þetta negativa, að maður sé ekki í neinum trúarbragðaflokki. Það er blátt áfram frágangssök, að heimta það.

Eg hefi annars ekki mikið að athuga við frumvarpið; tel það heldur til bóta; en þó hefði eg kosið að gamla áminningarræðan frá 1847 hefði verið feld niður og tekin úr lögum; eg hefi oft sem dómari, staðið svitnandi með hana í höndunum; eg kann hana ennþá held eg utanbókar, gæti lesið úr henni kafla, ef eg vildi, því til sönnunar, að hún er orðin alveg úrelt, óhafandi og ósamrýmanleg við löggjöf vorra tíma. Hún var samin í stranglega „pietistiskum“ anda, og hefir talsvert af formælingum, sem mig hefir jafnan ógað við. Hún ætti vissulega að hverfa úr sögunni.