08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1933 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)
50. mál, landsbankalög
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg veit, að þeim manni er vorkunn, sem sameinar í sér fleiri en eina persónu og á ilt með að aðskilja þær. Hv. seinasti ræðumaður gerir það, því hann er bæði alþingismaður og bankastjóri landsbankans. Það var bankastjóri landsbankans, sem seinast talaði. Hann ætlar að telja mönnum trú um, að það að svifta þing og þjóð eftirliti, sé að auka eftirlit með landsbankanum. Það er býsna undarleg aðferð. Hann segir, að fullkomlega sé bætt úr því, að gæzlustjóraembættin séu lögð niður, með rannsóknarnefnd, sem stjórnin á að skipa fimta hvert ár. En það sér hver heilvita maður, að eftirlit þings og þjóðar er ekki minstu vitund trygt með því. Bankastjóri er settur af ráðherra, rannsóknarnefndin sömuleiðis. Það er því ráðherra, sem er einvaldur »Zar« yfir bankanum, ef frumv. þetta fær fram að ganga.
Hinn háttv. þm. (B. Kr.) sagði, að gæzlustjórarnir gerðu bankanum ekkert gagn, væru handónýtir minnir mig að hv. þm. kæmist að orði. En gera þeir þinginu þá ekkert gagn með því að hafa eftirlit með öllu, sem fram fer, og skýra því frá, hvað athugavert er, og þá fyrst getur komið til mála, að alþingi skipi rannsóknarnefnd bygða á skýrslu gæzlustjóranna. En að vera að halda því fram, að þingið geti, ef það vilji, árlega sett rannsóknarnefnd samkvæmt 22. gr. stjórnarskrárinnar, og hafi því jafnt eftirlit með bankanum og áður, það er beinlínis að gera gys að oss. Höfum við ekki nóg að gera þessar fáu vikur, sem þingið stendur yfir, og ættum að gera leik að því, að setja stóra nefnd, sem ekki gæti öðru annað allan þingtímann, — og gera þetta án þess að knýjandi ástæður séu fyrir hendi, einkum þegar þess er gætt, að rannsóknarnefndin gæti ekkert farið út í smáatriði, en yrði að láta sér nægja með fljótfærnislega rannsókn á aðalatriðunum, vegna naums tíma. Hjá þessari eyðslu á tíma þingsins er komist, ef gæzlustjórarnir halda áfram eftirliti með bankanum fyrir þingsins hönd. Og hver maður verður að játa, að þar sem landssjóður lánar bankanum fé og gengur í ábyrgð fyrir hann, er þinginu rétt og skylt að hafa eftirlit með, að alt sé í lagi. Og án þess eg ætli að gera nokkuð lítið úr landstjórninni, þá er það áreiðanlegt, að þjóðin treystir betur tveim gæzlustjórum, sem fulltrúar hennar velja, en ráðherra.
Hv. flutningsm. (B. Kr.) var að tala um, að svipað frumv. hefði verið samþykt hér í deildinni á seinasta þingi, en það er, sem betur fer, ekki orðið að lögum ennþá og vonandi líta margir öðrum augum á málið nú en þá. Föstudagurinn »langi« í hitt eð fyrra hefir opnað augun á mörgum, svo að háttv. flutnm. getur ekki gert ráð fyrir jafnmörgum atkvæðum með frv. og seinast.
Eins og eg hefi sagt, ætla eg ekki að fara út í einstök atriði frumv. nú, og ekki heldur minnast á reglugerð bankans, sem stjórnin á seinasta þingi var skylduð til að semja og ekki hefir sést enn þá.
Hvað því viðvíkur, hvort málinu skuli vísa til bankarannsóknarnefndarinnar eða peningamálanefndarinnar, þá er það ekkert efamál, að bankarannsóknarnefndin á að fjalla um það, því að þetta frumv. kemur að eins stjórn bankans við, en hefir ekki minstu áhrif á peningamál landsins.