08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (2333)
50. mál, landsbankalög
Bjarni Jónsson:
Eg skal ekki ræða neitt um frumv. Eg vildi að eins víkja að nefndarskipuninni. Bankarannsóknarnefndin var að eins skipuð til þess, að rannsaka gerðir stjórnarinnar gagnvart landsbankanum, en þetta frumvarp kveður á um stjórn landsbankans o. fl. á komandi tíma. Það liggur því í augum uppi, að það nær engri átt að vísa frv. til bankarannsóknarnefndarinnar.