08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1942 í B-deild Alþingistíðinda. (2337)
50. mál, landsbankalög
Jón Ólafsson:
Eg skal fúslega kannast við, eins og háttv. þm. Dal. (B. J.) tók fram, að bankarannsóknarnefndin er kosin til þess að rannsaka bankamálið, en eg sé ekki, að það geti verið neitt því til fyrirstöðu, að hún hafi þetta mál líka til meðferðar.