08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1942 í B-deild Alþingistíðinda. (2338)

50. mál, landsbankalög

Sigurður Sigurðsson; Að mínu áliti er það alls ekki nægilegt eftirlit, að bankinn sé rannsakaður að eins 5. hvert ár. Sé eitthvað í ólagi hjá bankastjórunum, þá er svo auðvelt fyrir þá, að kippa því í lag, áður en rannsóknin færi fram. Við þekkjum dæmi til þess, að þetta hefir átt sér stað. Það, sem fyrir mér er aðalatriðið er, að trygging sé nægileg. Eg man nú ekki, hver afstaða mín var í þessu máli á síðasta þingi, en það hefir ekki svo mikið að segja; maður hefir ávalt leyfi til þess, að hugsa sig um, bæði í þessu máli og öðru.

Það hefir verið fundið gæzlustjórafyrirkomulaginu til foráttu, að þeir hafi verið svo stuttan tíma í bankanum, að lítið gagn hafi verið að því. En minna má á það, að þeir voru þar oft lengur en þeir þurftu að vera samkvæmt reglugerðinni. En væri það ekki ráð að lengja starfstíma þeirra? Hafa hann t. d. 3 stundir á dag og bæta við laun þeirra.

Frumv. gerir ráð fyrir, að þriðji bankastjórinn hafi 4000 kr. í laun. Væri ekki rétt að sleppa þriðja bankastjóranum og skifta að helmingi launum þeim, sem honum eru ætluð, milli gæzlustjóranna tveggja? Eg segi ekkert um það, hvort eða hvað mikið er við landsbankann að athuga. En maður hefir leyfi til þess og enda skyldu, að vera tortryggur nú á þessum tímum og fyrir mér er aðalatriðið, að svo verði búið um hnútana, að eftirlitið geti orðið svo gott sem unt er, og fullnægjandi gagnvart þingi og þjóð.

Að öðru leyti skal eg ekkert fullyrða um það, hver vera muni tilgangurinn með þessu frumvarpi. Eg vænti þess, að hann sé sá einn að tryggja sem bezt eftirlitið með bankanum og öllum hag hans.

Eg hallast að því, að máli þessu sé bezt komið hjá peningamálanefndinni. Hún er þannig skipuð, að þeim sem sitja í henni, er trúandi til að ráða fram úr, hvað bezt er að gera í þessu efni.