08.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)

52. mál, veðdeildarlagabreyting

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg ætla ekki að halda neina ræðu, en að eins gera eina litla fyrirspurn. Eg sé, að hér í deildinni hefir verið útbýtt lögum um stofnun fasteignabanka. Væri nokkuð á móti því að taka þetta mál út af dagskrá nú og geyma það þangað til frumv. um stofnun fasteignabankans kemur til umr. hér í deildinni og vísa þessu máli þá til þeirrar nefndar, sem skipuð verður til að athuga hann?