22.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2375)
89. mál, bygging jarða og ábúð
Eggert Pálsson:
Af því málið er nú til 2. umr., en þess þarf með, eins og yfir höfuð nauðsynlegt er með öll mál, að það liggi sem ljósast fyrir við 3. og síðustu umr., þá vil eg leyfa mér að skjóta þeirri spurningu til háttv. framsm. (St. St.), hvað hann eða nefndin hugsi sér að liggi í orðinu landsdrottinn, þegar um kirkjujarðir er að ræða. Mér er kunnugt um, að um þetta eru talsvert skiftar skoðanir. Það er álit sumra, að presturinn sé landsdrottinn þeirra kirkjujarða, sem hann hefir undir höndum, en aðrir álíta landssjóðinn vera það, en prestinn sem nokkurskonar umboðsmann, og hallast eg fyrir mitt leyti að þeirri skoðun. En þetta verður að vera alveg skýrt. Vil eg því mælast til, að nefndin athugi þetta atriði, áður en málið verður tekið til 3. umr., svo að það komi glögglega í ljós, hver skilningur löggjafarvaldsins er í þessu efni. Það er, eins og augljóst er, afar áríðandi að vita, hver hinn rétti landsdrottinn er, þar sem hann á samkv. frumv. að leggja fram ¾ hluta til húsabótanna. Sé landsdrottinn kirkjujarðanna, eins og eg vil álíta, sjálfur landssjóðurinn, og komi það skýrt fram, þá hefi eg ekkert út á ákvæði þetta að setja. En sé presturinn skoðaður sem landsdrottinn þeirra jarða, er hann hefir undir höndum, og ætti hann að greiða alt þetta fé, sem hér um ræðir, þá mundi það í mörgum tilfellum gleypa allar tekjur hans, og leiða til algerlegrar, óbrúklegrar rangsleitni, sem eg hygg að enginn háttv. þingm. gæti greitt atkv. með.