21.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (2397)
98. mál, kjördæmaskipun
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg ætla mér ekki að fara út í einstök atriði þessa frumv. Eg skal með leyfi hæstv. forseta lesa upp 1. lið 14. gr. stjórnarskrárinnar, sem nú er í gildi. Þar stendur:
»Á alþingi eiga sæti 34 þjóðkjörnir alþingismenn og 6 alþingismenn, sem konungur kveður til þingsetu«.
Þetta frv. fer fram á stjórnarskrárbreytingu og á því að verða vísað frá, því að ekki stendur í fyrirsögninni, að það sé frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Þótt stjórnarskrárbreyting verði gerð nú, þá á þetta frumv. ekki að koma fram fyr en á næsta þingi, sem samþykkir stjórnarskrárbreytinguna. Konungur getur ekki skrifað undir þetta frumv. nema stjórnarskrárbreyting hafi farið fram. Þetta frumv. mun vera eitt af þeim mörgu nafnafrumvörpum, sem hér sjást stundum. En eg hirði ekki um að fara fleiri orðum um frumv. vegna þess, að því á að vísa frá.