06.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1997 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

112. mál, merking á kjöti

Framsögum. (Björn Sigfússon):

Það, sem hinn hv. þm. Dal. (B. J.) sagði, var ekki annað en endurtekning á því, sem hann sagði við 1. umr. Hann sagði, að stimplað kjöt hefði hækkað um 7—8 kr., án þess þó að annað kjöt hefði lækkað. En honum er ekki hægt að fullyrða neitt um það, allra sízt hvernig verður í framtíðinni. Eins og bent var á við 1. umr. eru að eins 2 sláturfélög, sem not geta haft af dýralæknum, í Reykjavík og Akureyri, og getur vel verið, að það verði til þess, að lækka kjötið hjá öðrum félögum, en það væri enginn smáræðisskaði, ef svo yrði, og máske meiri en svo, að hagnaður þessara tveggja vegi upp á móti þeim skaða.

Hinn hv. þm. (B. J.) kallaði þessa menn skottudýralækna, og vildi með því fyrirfram reyna að gera þá auðvirðilega. Oss nefndarmönnum kom ekki til hugar að kalla þá dýralækna, hvorki með skotti eða án þess. En þrátt fyrir það vildi nefndin tryggja, að þeir hefðu fulla þekking á þessu verki, sem þeim er ætlað að vinna. Það er ekkert hætt við, að dýralæknarnir gæfu þeim prófsvottorð, nema þeir stæðust prófið, né heldur hitt, að þeir yrðu löggiltir af stjórninni þekkingarlausir.

Háttv. þm. veit alls ekkert um það, hvort stimplun þessara manna yrði síður tekin gild en dýralæknanna. Það eru bara fullyrðingar hans, ef til vill eftir innblæstri frá þeim, sem er illa við að gengið sé inn á sérmálasvið dýralæknanna.

Sami háttv. þm. sagði, að eina ráðið til þess að bæta úr þessu, væri að fjölga dýralæknum. Nefndin hefði helzt kosið, að dýralæknum væri fjölgað, en það er ekki hægt nema á nokkuð löngum tíma. Það eru nú liðin eitthvað 20 ár, síðan þingið fór að hvetja menn til þess að nema dýralækningar, með því að veita styrk til þess á fjárlögunum. Á þessum tíma hafa 2 lokið prófi, en margir fleiri hafa þó fengið styrkinn. Svipað mundi verða eftirleiðis, þótt þingið veiti styrkinn. Það yrði í fyrsta lagi eftir 6 ár, að við getum búist við að fá dýralækni, þó við veitum fé til dýralæknisnáms nú. Þetta á að vera bráðabirgðaákvæði, þangað til við fáum dýralækna.