14.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í B-deild Alþingistíðinda. (242)
69. mál, utanþjóðkirkjumenn
Kristinn Daníelsson:
Eg verð nú að vísu, að segja það, að atriði þau, sem háttv. 5. konungkj. fann frumvarpi þessu til foráttu, voru að minni hyggju, ekki sérlega veigamikil, og eg skal ekki heldur kveinka mér, þótt sami háttv. þingm. sneyddi hálfvegis að því, að í nefndinni sætu 3 prestar; því eg fyrir mitt leyti verð að segja, að meira beri að líta á það,. hvort þeir, sem í nefndinni sátu, hafi komið fram með sennileg rök máli sínu til stuðnings, heldur en hitt, hverjir þeir voru, prestar eða eitthvað annað. Eg vil ekki beint væna háttv 5. konungkj. þess, að hann hafi ekki lesið nefndarálitið, en þó lætur nærri, að maður freistist til að halda að svo hafi þó verið. Háttv. 5. kkj. hélt því fram, að svo gæti farið, samkv. þessum breytingum, að sami maður yrði kannske að standa straum af tveim kirkjum í senn. Þetta er alveg rangt hjá háttv. þingmanni. Hann sagði og, sami háttv. þingm., að ef dómkirkjan í Reykjavík yrði safnaðarkirkja, þá gæti þetta mjög auðveldlega komið fyrir; en eg held nú að eitthvað annað sé líklegra en það, að Reykjavíkurdómkirkja verði safnaðarkirkja á næstu árunum. Auk þess, er það líka alveg augljóst, að maðurinn yrði því að eins að borga skuldina, að hann væri kyr á sama sóknarsvæðinu. Það getur verið að breytingartillaga sú, sem hv. 5. kgkj., ráðgerir að koma með, miði til nokkurs konar samræmis. En þetta getur ekki komið til greina, þar sem kirkjunni er ætlað að standa áfram og hún verður að halda öllum eignum sínum til viðhalds sér og ekki hægt að taka af henni það, sem hún með réttu hefir til þess. Um það gæti því að eins verið að tala, að kirkjuna ætti að leggja niður og „realisera“ eignir hennar.
Háttv. 5. konungkj. sagði, að hér væri um stórt principmál að ræða; eg er að vísu enginn lagamaður, en það fæ eg engan veginn skilið, að hér sé um nokkra hættu að ræða, og hygg að lagaskólastjórinn geti haldið óhögguðum öllum „principum“ í lagakenslu sinni, þó að þetta verði að lögum. Þessar breytingar eru nauðvörn fyrir söfnuði og kirkjur eins og á stendur, og getur orðið eina bjargráðið fyrir kirkjurnar í bili.