21.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (2424)
3. mál, búnaðarmálanefnd
Flutningsmaður (Sigurður Sigurðsson). Það hefir verið venja á undanförnum þingum, að kjósa nefnd til að íhuga búnaðarmál landsins og eg er þess fullviss, að flestir óska, að þeirri reglu verði einnig fylgt að þessu sinni. Eg býst við, að á þessu þingi verði flutt ýms mál, sem vísað verði til þessarar nefndar og sum af þeim, sem ekki urðu útrædd á seinasta þingi, og landbúnaðarnefndin þá hafði til meðferðar, verði tekin upp á ný. Eg skal
t. d. leyfa mér að nefna frumvarp um breyting á ábúðarlöggjöfinni.
Annars virðist óþarfi að að fara mörgum orðum um þessa tillögu. Eg býst við, að háttv. deild taki henni vel og samþykki nefndarkosninguna.