20.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (2427)
4. mál, styrkveiting úr landssjóði til búnaðarfélaga
Flutningsm. (Sigurður Sigurðsson):
Eg skal ekki tefja tímann með langri ræðu. Það eru þegar komnar fram brtill. við tillögu mína, á þgskj. 51, en það yrði of langt mál að ræða þær nú. Eg vil því leyfa mér að stinga upp á, að málinu sé vísað til landbúnaðarnefndarinnar og 1. umr. þess frestað.