23.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2010 í B-deild Alþingistíðinda. (2433)
4. mál, styrkveiting úr landssjóði til búnaðarfélaga
Frams.m. (Sigurður Sigurðsson):
Brtill. hafa engar komið fram við tillöguna, nema ein á þgskj. 285. Hún er fólgin í því, að meter sé breytt í stiku, fermeter í ferstiku
o. s. frv. Eg hefi ekki átt kost á að ráðfæra mig við landbúnaðarnefndina um þessa brtill., og get því ekki sagt, hvernig nefndin muni taka henni. En sjálfur er eg henni mótfallinn og mun greiða atkvæði á móti henni. Orðið meter er nú orðið rótgróið í málinu og því miklu eðlilegra að nota það en önnur orð, sem einstakir menn hafa verið að mynda. Sem sagt, eg tek þetta fram að eins frá mínu sjónarmiði, en ekki í umboði nefndarinnar.