23.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2011 í B-deild Alþingistíðinda. (2434)

4. mál, styrkveiting úr landssjóði til búnaðarfélaga

Bjarni Jónsson:

Eg verð að játa, að eg á það að þakka vinsamlegri bendingu háttv. meðflutningsmanns míns að þessari brtill., að eg varð var við, hvílíkt skrípi hér er á ferðinni. En úr því mér var bent á það, skal það ekki mótmælalaust af minni hálfu, að móðurmál vort sé atað með slíkum óþverra. Þegar um það er rætt, að byggja út útlendum orðum, sem eru nýsloppin eða eru að sleppa inn í íslenzkuna, þá er algengt, að menn spyrji, hvers vegna vér ekki getum tekið upp þessi orð, eins og forfeður vorir hleyptu ýmsum útlendum orðum inn í málið, t. d. orðunum: prestur, biskup o. s frv. En því er auðvelt að svara. Forfeður vorir voru að vísu ágætir menn, en í þessu sást þeim yfir og væri oss sæmra að líkja eftir þeim í einhverju öðru. Ennfremur spyrja menn oft, hvers vegna ekki sé farið fram á að útrýma öllum þessum gömlu útlendu orðum úr málinu, úr því menn amist við hinum nýju. En allir ættu að geta séð, að mismunur er á orðum, sem eru orðin mörg hundruð ára gömul í málinu og þess vegna rótgróin, og orðum, sem eru nýsloppin inn og næstum því eingöngu notuð af mönnum, sem hafa gaman af að sýna menningarþroska sinn á þann hátt. Eg get ekki skilið, að þeir grísklatnesku kentaurar, sem hér ræðir um, eigi að hafa neinn sérstakan rétt á sér. Latneska orðið mille þýðir þúsund, gríska orðið kilioi þýðir hið sama, en í hinu útlenda orðakerfi er mille látið deila, kilioi margfalda (millimeter, kilometer). Í hinu íslenzka orðakerfi, sem við Guðm. Björnsson landlæknir mynduðum, var talan látin deila, er hún var forskeyti, en margfalda er hún var skeytt aftan við orð (þúsundstika, stikuþúsund). Það er bágt að gizka á, hvers vegna þessi heiti ættu ekki að geta orðið Íslendingum jafntöm sem hin útlendu heiti, sem í sjálfu sér eru ófær orðskrípi. Og ekki tjáir að bera það fyrir sig, að ókleift sé að útrýma slíkum orðum; áður sögðu menn t. d. jafnan cigar, en nú er vindill í hvers manns munni. Nei, kerfi okkar Guðm. Björnssonar var að vísu gott, en það hafði þann ókost, að allir skildu það og þess vegna töldu sumir það óhæft, því að margir halda, að ekkert geti verið nýtilegt nema moldviðrið eitt. Sumir þykjast líka fjarska miklir menn, þegar þeir eru að hreyta úr sér þessum útlendu orðum; það er ekki lítill sómi að kunna svo vel að apa útlendinga! Þó munu flestir góðir menn vera sammála um, að hér sé um nauðsynjamál að ræða, enda hefir ráðherra sá, er nýlega fór frá völdum, reynt að koma föstu skipulagi á alt þetta orðakerfi. Allir játa, að meter fari illa í íslenzku máli. (Sigurður Sigurðsson: Í tillögunni stendur hvergi meter). Jú, hér stendur meter á einum stað og ef það er prentvilla, þá er það prentvilla, sem verður að standa, því að þetta er síðari umr. Þar að auki er orðið stika nú orðið fast í málinu; allir skilja við hvað er átt og er því óþarfi að gera sér grýlur úr slíku. Rúmstika þarf ekki skýringar við, þó mætti eins vel nota orðið teningsstika.

Eg get ekki skilið annað, en að menn alment fari að sjá, að full ástæða er til að standa á verði gagnvart slíkum orðskrípum. Það tjáir ekki að vitna í dæmi annara þjóða, þar hafa þessar grísk-latnesku ófreskjur komist inn fyrir löngu og sitja því nú eins og goð á stalli. Þó gera nú t. d. Þjóðverjar alt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að víkja þessum álfu orðum (eða álfa orðum) úr málinu, og það jafnvel í svo hávísindalegri fræðigrein sem læknisfræðinni.

Vér ættum að hafa þá föstu venju að reyna altaf að þýða öll þau útlend orð, sem smeygjast vilja inn í málið; þótt illa takist í fyrstu, þá lánast það ef til vill síðar.

Enn vil eg minnast á eina röksemd, sem eg hefi heyrt flutta gegn nýyrðum. Hún er sú, að ef vér ekki tökum upp þessi útlendu orð, þá verði mönnum erfiðara að læra dönsku. Slík ósköp eru á borð borin í röksemda stað! Og svo vill svo illa til, að íslenzkan afbakar þessi orð, svo þau fljótt verða ókennileg, og er því þessi röksemd einkisverð einnig af þeirri ástæðu.

Eg hefi oft haft tækifæri til þess að tala um þetta fyr, en hér á þingi veit eg ekki til, að þetta hafi verið vítt sem skyldi, síðan Guðm. Björnsson var alþingismaður. Hann gerði það og gerði það vel, svo sem vænta mátti af honum, málfróðum manni og orðhögum.

Eg skal svo ekki orðlengja frekar um þetta, en ef eg mætti vera ráðunautur háttv. 2. þm. Árn. (S. S.), þá vildi eg ráða honum til, að leggja meiri rækt við móðurmál sitt, en þessi tillaga ber vott um.