21.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2023 í B-deild Alþingistíðinda. (2457)

7. mál, hagur Landsbankans

Pétur Jónsson:

Eg vil leyfa mér að gera þá fyrirspurn til háttv. flutningsmanna, hvort ætlast er til, að væntanleg nefnd taki nokkuð til athugunar eða rannsóknar meðferð stjórnarinnar á landsbankanum 2 seinustu ár — ef svo er ekki, álít eg réttast að vísa málinu til þeirrar nefndar, er á að fjalla um peningamálin.