21.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2023 í B-deild Alþingistíðinda. (2458)

7. mál, hagur Landsbankans

Jón Magnússon:

Það hafa heyrst raddir um það hér í deildinni, að máli þessu beri að vísa til hinnar nýkosnu peningamálanefndar. En í því formi, sem málið er nú komið inn í deildina, er það ekki hægt. Hér er um eitt af tvennu að velja, annaðhvort að fella till., eða hún sé tekin út af dagskrá í dag og það álít eg hið réttasta. Flutningsmenn gætu þá fljótt komið henni breyttri inn í deildina aftur, en hitt væri ólöglegt, að vísa málinu nú þegar til 7 manna nefndar, er tillagan er um 5 manna nefnd.