21.02.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2024 í B-deild Alþingistíðinda. (2460)

7. mál, hagur Landsbankans

Flutnm. (Magnús Blöndahl):

Sem svar upp á fyrirspurn háttv. þm. S. Þing. (P. J.) vil eg taka það fram, að tillaga þessi snertir alls ekki það atriði, er hann gat um. Tillaga þessi til þingsályktunar gengur að eins út á það, hvernig heppilegast sé að efla hag landsbankans, en alls ekkert annað. Með því að eg fellst algerlega á það, er hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó,) og hv. þm. Vestm. (J. M.) sögðu viðvíkjandi tillögunni, óska eg að mál þetta verði tekið út af dagskrá.