24.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2055 í B-deild Alþingistíðinda. (2497)

16. mál, innsetning gæslustjóra Landsbankans

Skúli Thoroddsen:

Út af ræðu hins háttv. þm. Dal. (B. J.) verð eg að geta þess, að eg skil ekki, hvers vegna hann óttast, að gæzlustjórinn verði í hættu staddur, þótt hin rökstudda dagskrá yrði samþykt. Hann hlýtur þó að vita, að gæzlustjórinn á hauk í horni, þar sem núverandi ráðherra er. En ef svo ólíklega skyldi fara, að ráðherra setti hann ekki inn í embætti sitt, þá gæti deildin látið nýja gæzlustjórakosning fara fram og kosið þann mann, sem hér á hlut að máli. Og yfir höfuð hefði deildin ótal vegi til þess að rétta hlut hans.