11.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (2512)
54. mál, strandgæsla
Sigurður Gunnarsson:
Eg lýsti yfir því um daginn, er till. hins háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) var til umræðu, að eg gæti fallist á hana, en þó hefi eg leyft mér að koma fram með 2 brtill. í því skyni einu, að svæði það, sem till. ræðir um, verði víkkað. Eins og menn muna, fór tillagan fram á betri strandgæzlu við Vestfirði, en eg vil að Breiðafjörður verði tekinn með. Bæði mér og öðrum er fullkunnugt, að strandgæzlan á Vestfjörðum og Breiðafirði er allsendis ónóg. Sannast að segja horfir til vandræða á Breiðafirði, sérstaklega í veiðistöðvunum Ólafsvík og Hellisandi. Sérstaklega verða mikil brögð að yfirgangi botnvörpunga, þegar kemur fram yfir mitt sumar. Koma þeir þá á kvöldin og fiska að nóttunni og helzt þetta fram eftir öllum vetri. Má nærri geta að þeir stórspilla bæði fiskiveiðum og veiðarfærum. Satt mun það, að víða er strandgæzlunni hér við land ábótavant, en eg hygg þó, að þetta svæði hafi sérstaklega orðið út undan.
Eg vona, að hin háttv. deild sjái, að hér er um alvarlegt mál að ræða, er snertir aðalbjargræðisveg svo að segja allra íbúa tveggja hinna fjölmennustu hreppa og er því lífsnauðsyn að landsstjórnin leggi sig alla fram til þess, að fá ráðna bót á þessum hrapallega atvinnuspilli.
Að endingu vil eg mæla fram með þeirri brtill., að í staðinn fyrir 1. sept. komi 1. ágúst.