02.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2541)

160. mál, strandferðir

Forseti:

Mér þykir mjög leitt, hve seint þessi beiðni kemur fram, og þar eð á morgun er fullskipað á dagskrá þar á meðal stjórnarskráin, þá getur málið ekki komið þá til greina. Þó skal eg, þar eð svo margir mælast til þess og nefndin leggur ekki á móti því, leyfa mér að taka málið út af dagskrá í dag.