14.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2090 í B-deild Alþingistíðinda. (2566)

59. mál, frímerki

Björn Jónsson:

Eg kannast ekki við, að eg hafi farið með þetta mál, eins og neitt mannsmorð. Flutningsmenn hafa rokið til og borið þessa tillögu fram, án þess að spyrja mig, hvort eg hafi nokkuð gert í þessu máli. Eg hefi þó daglega verið hér í deildinni, svo þeir hefðu getað spurt mig um það, og þá hefðu þeir getað sparað sér þetta ómak.