14.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2091 í B-deild Alþingistíðinda. (2567)
59. mál, frímerki
Sigurður Gunnarsson:
Eg ætla ekki að blanda mér í deilur þær, sem hér hafa orðið. En eg get ekki stilt mig um að lýsa gleði minni yfir því, að hin fráfarandi stjórn hefir gert ráðstafanir til þess að láta búa til þessi frímerki og alt landið mun vera henni þakklátt fyrir það, og telja þetta vel gert, með því tilbúningur þessara frímerkja er einkarvel fallinn til þess að minna á og gera hátíðlegt aldarafmæli Jóns Sigurðssonar, og tel eg litla þörf á að sakast um það, þótt stjórnin væri ekki nú búin að birta þessa ráðstöfun sína.