06.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2111 í B-deild Alþingistíðinda. (2603)

138. mál, sambandsmálið

Flutnm. (Skúli Thoroddsen):

Eg hafði ekki hugsað mér að hefja langar umræður um þetta mál. Eins og kunnugt er, þá samþykti síðasta alþingi lög um samband Danmerkur og Íslands. Danska stjórnin vildi ekki leggja þau fyrir ríkisþingið. Tilgangurinn með því að bera þessa þingsályktunartill. fram er tvenns konar. Annar er sá, sem veit út á við, að sýna Dönum, sem og öðrum þjóðum, að Íslendingar halda fast við réttarkröfur sínar. Með tillögunni fær ráðherra sérstaka hvöt til að hreyfa málinu og reyna að fá dönsku stjórnina til að leggja það fyrir ríkisþingið. Hefði það ekki litla þýðingu. Þó þau næðu þar ekki fram að ganga, þá ykist þó þekking danskra þingmanna á málum okkar og þekking hinnar dönsku þjóðar um leið. Þá mundu hefjast umræður um það í dönskum blöðum, og þó það bæri ekki árangur í svip, þá mundi það verða okkur mikils vert.

Þá er hin hliðin á málinu, sem snýr að oss sjálfum, að halda vakandi áhuga hinnar íslenzku þjóðar á málinu. Hann verður að vera sívakandi, þar til sigur vinst í máli þessu.

Eg finn svo ekki ástæðu til að orðlengja meira um þetta að sinni, en bíð þangað til mótmælum verður hreyft. (Jón Þorkelsson: Það verður enginn á móti því). Því miður er eg hræddur um, að það verði ekki samþykt í einu hljóði.