06.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)

138. mál, sambandsmálið

Flutnm. (Skúli Thoroddsen):

Eg vil svara háttv. þm. Vestm. (J. M.) nokkrum orðum, þó að háttv. þm. Dal. (B. J.) hafi í rauninni tekið af mér ómakið. Ræða hans var mjög íhaldssöm, og sú kenning, sem hann flutti, að menn ættu að þagna, ef þeir fengju afsvar, er mjög ísjárverð. Slíkt getur enginn framfaramaður látið sér um munn fara, menn eiga einmitt að harðna við afsvörin. Hvernig hefði farið, ef þm. Vestm. (J. M.) hefði setið á þingum meðan stjórnarskrárbaráttan var háð? Þá hefði hann ekki þurft að vera í vandræðum með að vitna í lagasynjanir. En það var einmitt baráttan, sem gaf oss sigurinn að lokum, og svo mun enn fara. Það er rangt hjá hinum háttv. þm. (J. M.), að þetta sé endurnýjun á vantraustsyfirlýsingunni til fyrv. ráðh. (B. J.). Eg efast ekki um, að hann í þessu máli hefir gert sitt ýtrasta, þótt honum yrði ekkert ágengt. En hver veit, nema nú gangi betur. Allir munu þekkja það af eigin reynslu, að ef nógu lengi er nauðað á manni, þá verður maður að láta undan að lokum. Vér eigum einmitt sífelt að vera að ala á kröfum vorum, svo að Danir verði leiðir og slaki til.

Það er rétt, sem hinn háttv. þm. (J. M.) sagði, að ríkisdagurinn getur ekki sett lög um þetta mál upp á eigið eindæmi, það kemur líka til alþingis kasta. En gerir það nokkuð til, þótt Danir byrji einu sinni og Íslendingar komi svo á eftir. Vér vitum hvort sem er, að fyr eða síðar hlýtur þetta ,mál að koma til meðferðar á ríkisdeginum, þótt vér í rauninni eigum aðgang að konunginum einum.

Loks vil eg láta í ljósi undrun mína yfir því, að ráðh. (Kr. J.) er ekki viðstaddur, þegar slíkt mál er rætt. En hann hefir víst treyst heimastjórnarmönnum til þess að tala fyrir sína hönd.