04.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2132 í B-deild Alþingistíðinda. (2646)

161. mál, læknakosningar

Flutningsmaður (Jón Jónsson 1. þm. N.-Múl.):

Eg vænti, að háttv. þingd. taki þessari tillögu vel. Mönnum er það kunnugt, að fullt eins mikil ástæða er til að kjósa lækna, eins og presta. Prestarnir eru kjörnir af söfnuðunum með það fyrir augum að sjá fyrir sálarheill safnaðanna, en læknar eiga að sjá fyrir líkamlegri heilbrigði. Er hér um nokkuð skylt mál að ræða, og ekki hægt að gera hér upp í milli.

Eins og kunnugt er, hagar veitingarvaldið veitingum svo, að eldri læknar eru látnir sitja fyrir hinum yngri, og sömuleiðis háskólakandídatar, þótt enga yfirburði, eða jafnvel síður en svo, hafi yfir hina. Einnig er talið sjálfsagt, að veita embættin, þótt ekki sé nema einn umsækjandi, án þess að hann hafi nokkur sérstök meðmæli né sé til stöðunnar fallinn. Eg vona, að hæstv. ráðherra hafi ekki á móti tillögunni og líti á þetta með sanngirnisaugum. Yfir höfuð er það slæmt, ef óánægja rís út af slíkum málum. Stjórninni er um kent, ef í embættin veljast miður hæfir menn, um leið og máske hæfum læknum er bolað frá.

Það vita allir, að það er svo margt, sem til greina kemur við slíkar embættaveitingar: pólitísk áhrif, vinfengi og frændsemi; því verður ekki á móti borið, menn þekkja það svo vel. Auðvitað er misjafnt, hvað stjórnin er óhlutdræg í þessu efni. En svona gengur það. Aðalreglan er að vísu sú, að fara eftir því sem mennirnir hafa reynst, og einmitt þess vegna ættu héraðsbúar að fá að leggja sinn dóm á manninn, áður en hann er skipaður. Það er oft bagalegt, þegar gömlum lækni, þótt hæfur sé, er veitt erfitt hérað, en ungur maður kemst ekki að, þótt miklu betur sé til stöðunnar fallinn.

Eg skal ekki fjölyrða meira um till.; eg vona, að henni verði vel tekið.