07.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (265)

48. mál, stýrimannaskólinn

Lárus H. Bjarnason:

Eg vil benda hv. 3. kgk. þm. á það, að með l. nr. 50, 10. nóv. 1905 var slakað til á kröfunum til skipstjóra og stýrimanna hér við land, og það svo mjög, að þó að eg sé ósiglingafróður maður, þá finst mér það vera nógu langt farið. — En svo er eitt, sem eg vil minna nefndina á, og þó einkum vini mína, sjálfstæðismennina í henni, ekki sízt hinn lögfróða þm. Strandamanna og það er það, hvort ekki muni tiltækilegt í sambandi við þetta mál að lagfæra eitt ákvæði í 8. gr. fyrnefndra laga nr. 50 frá 10. nóv. 1905, þar sem gert er að skilyrði fyrir því, að öðlast skírteini sem skipstjóri jafnvel í innanlandssiglingum, að hafa rétt innborinna manna eða heimilisfestu í Danaveldi. Vill ekki nefndin taka það til athugunar, hvort ekki mætti fella þetta skilyrði í burtu. Mér finst nægilegt að áskilja að skipstjórar skuli vera heimilisfastir á Íslandi. Þetta ákvæði komst inn í frv. fyrir hálfgert athugaleysi n. d. 1905; réttur innborinna manna er í íslenzkum lögum að eins settur sem skilyrði á fjórum stöðum. Í fyrsta lagi getur, samkv. 4. gr. stjórnarskrárinnar, enginn orðið embættismaður á Íslandi, nema hann hafi rétt innborinna manna. Í öðru lagi er hann skilyrði fyrir því að geta unnið sér sveit hér á landi samkv. 32. og 37. gr. l. nr. 44 frá 10. nóv. 1905. Í þriðja lagi getur, samkv. l. frá 13. desbr. 1895, ekkert skip orðið skrásett hér á landi, nema að minsta kosti hlutar þess séu eign innborinna manna, og í fjórða lagi er þessi réttur skilyrði fyrir því að geta orðið skipstjóri hér, eins og eg gat um áðan. Þessum ákvæðum mætti kippa burt jafnóðum og tækifæri gefast, og eg vil skjóta því til nefndarinnar, hvort ekki er tækifæri til að fækka þeim nú.