07.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í B-deild Alþingistíðinda. (268)
48. mál, stýrimannaskólinn
Eiríkur Briem:
Það hefir verið tekið fram, að prófkröfurnar við Stýrimannaskólann séu auknar með þessu frv. Það er meira í orði, en á borði. Í 2. gr. 11. lið frv. stendur, að nemendur skuli kunna að finna „misvísun við athugun sólar“, í stað þess að í eldri lögum stendur „misvísun með sólmiðun“. Þetta munar engu, því að nemendur læra hvort sem er athugun sólar á skólanum. Þá er bætt við 13. lið „að kunna að finna misvísun við athugun pólstjörnunnar“. Það er satt að segja mjög létt verk. Eg hefi einu sinni kent manni, að þekkja og athuga pólstjörnuna á ekki lengri tíma en einni klukkustund. Nokkrum árum seinna var þessi maður háseti á skipi, sem einu sinni var út í ofsaveðri, svo að skipstjóra tók út og kompásinn tapaðist. Enginn hinna gat neitt gert til að bjarga skipinu, en þessi maðurinn gat, af því hann þekti pólstjörnuna, stýrt eftir henni í rétta átt, og bjargaði skipinu. Eg nefni þetta sem dæmi þess, hversu mikilsvert svona auðlært atriði eins og að þekkja pólstjörnuna getur verið. Í 15. lið er bætt við sem skilyrði „þekking á björgunarverkfærum“, og í 16. lið „að kunna að nota hina alþjóðlegu merkjabók, og veðurmerki“. Hvorugt þessara atriða er vandlært. Mestur fyrirhafnarauki fyrir nemendur felst í 17. lið. En það er sannarlega mikilsvert, að á hverju skipi sé einhver maður er geti bundið um sár og beinbrot, kipt í lið og kunni einföldustu reglur um meðferð sjúklinga, er einhver þess háttar slys vilja til. — Viðvíkjandi aðfinslum hv. 3. kgk. þm. út af því ákvæði í frv., að verkefni við skriflegt próf í stærðfræði og siglingafræði, skuli tekin til af stýrimannakensluforstjóranum í Kaupmannahöfn, skal eg taka það fram, að hann tiltekur verkefni fyrir alla stýrimannaskóla í Danmörku. Enda er þetta ákvæði tekið óbreytt upp úr gömlu lögunum. Þetta hefir verið álitið nauðsynlegt fyrir tiltrú og álit skólans, nauðsynlegt til þess að prófið yrði áreiðanlegur vottur um þekkingu þeirra er standast það. Auðvitað væri auðvelt að velja alveg eins góð og hentug verkefni hér á landi, en þetta, að þau eru valin af stýrimannakensluforstjóranum í Danmörku og eru þar hin sömu sem við skóla þar, er trygging fyrir áliti skólans og prófsins. Ef verkefnin væru valin hér, mundi það ef til vill geta haft þau áhrif, að sumum fyndist það betra að ganga á skóla í Danmörku og taka próf þar, og gæti þannig hindrað aðsóknina að skólanum hér. Þess vegna áleit nefndin varhugavert að breyta þessu ákvæði. Enda hefir þetta enga þýðingu fyrir skólann; það gerir hvorki til né frá. Prófverkefnin, sem frá Danmörku koma eru alls ekki svo þung, að ástæða sé til að amast við þeim af þeirri ástæðu. Mér er kunnugt um það, af því eg hefi verið prófdómari í skólanum. Áður en skólinn var stofnaður, var hér lítilsháttar kensla í stýrimannafræði, og var eg einnig þá prófdómari, og voru verkefnin, sem eg valdi, oft þyngri en þau reyndust síðar frá stýrimannakensluforstjóranum í Höfn.