01.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

30. mál, laun sóknarpresta

Steingrímur Jónsson:

Háttvirtur 5. konungkj. skaut máli sínu til okkar, hinna tveggja verzlegu manna, er í nefndinni sátu. Eg skal játa, að kostnaðurinn verður talsverður fyrst í stað. Fyrsta árið 3400 krónur.

Á árunum 1886—1888 voru vígðir 24 prestar, sem hefðu þurft eftir núgildandi lögum að bíða 3—4—5 ár, til þess að komast í hæsta launaflokk. En aðalspurningin er ekki um það, hve mikill kostnaðaraukinn verði 2—3 næstu árin, heldur hvað við taki í framtíðinni, hvort kostnaðurinn við þessa breytingu, verði þá mikill, eða ekki. Eg hefði getað reiknað þetta út nokkuð nákvæmlega, hefði eg haft tíma til þess. En sem sagt býst eg ekki við, að breytingin verði landsjóði teljandi byrðarauki, en hún bætir augljóslega nokkuð úr því misrétti, sem prestastétt vor á að búa við undir nýju prestalaunalögunum eins og þau nú eru orðuð.