25.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Jón Jónsson (1. þm. S-Múl.):
Við þessa umr. verður ekki ástæða til þess að halda neinn eldhúsdag, því að mönnum hefir margsinnis áður gefist tækifæri til þess að lýsa skoðunum sínum á stjórn fyrv. ráðh., enda eru margar af stjórnarathöfnum hans ennþá í hendi rannsóknarnefndar. — Eg get tekið undir með háttv. framsm. (B. Þ.), að fjárhagsástandið er ískyggilegt og verður sjálfsagt ekki álitlegra um það, er umræðunum um fjárlögin lýkur. Að þessu sinni vil eg aðeins benda á, að þótt fjárlaganefndin hafi lækkað áætlun stjórnarinnar um tekjur af vínfangatollinum, þá þarf að lækka hana ennþá miklu meir og mun eg seinna koma fram með brtill. um það.