03.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í B-deild Alþingistíðinda. (285)

30. mál, laun sóknarpresta

Frams.m. Kristinn Daníelsson:

Eg hefi engu að bæta við það, sem sagt var um daginn við 2. umræðu. Eg skal því ekki lengja umræðurnar mikið að þessu sinni.

Það er komin fram br.till. frá hv. 2. þm. Skagf. (J. Bj.) um, að í stað „22 þjónustuár“ komi: 24 þjónustuár. Eg get lýst yfir því fyrir hönd nefndarinnar, sem hefir borið sig saman um þetta atriði, að hún getur ekki fallist á þessa br.till. né gefið henni atkvæði sitt. Það var áður minst á þetta í nefnd, en hún féll einróma frá því að koma þessu þannig fyrir. Þessi tillaga byggist á því, að meðalþjónustualdur presta sé 36 ár, en hann er ekki svo hár; það getur varla komið til mála að ætla hann svo háan. Skjallegar skýrslur hefir nefndin að vísu ekki haft með höndum um þetta atriði. Hér við bætist, að líkur eru til, að þjónustualdur presta verði ekki svo hár eftirleiðis, sem hann hefir verið hingað til. Prestaköllin stækka og verða því erfiðari — og af því endast prestarnir ver til prestsþjónustunnar. Ýmislegt fleira mætti telja til. Með þessari br.till. — ef hún verður samþykt — er minkað við presta á þeim tíma, er sízt skyldi, á því skeiði, er erfiðleikarnir eru hvað mestir við að stríða í fjárhagsefnum, á þeim tíma, er þeir hafa mestan kostnað við mentun barna sinna. Hér við bætist og, að þetta ákvæði mundi koma mjög hart niður á þeim, er prestvígðir eru á árunum 1886—88—90 — og það verður jafnframt að hafa það fyrir augum.

Eg skal svo að sinni ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en leyfi mér að mæla með því, að frumv. verði samþykt óbreytt, eins og það var samþykt við 2. umræðu.