03.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (286)

30. mál, laun sóknarpresta

Jósef Björnsson:

Eg hefi leyft mér að koma fram með þá breytingartillögu, er hér liggur fyrir, til þess að draga úr þeim kostnaði, er frumvarpið bakar landssjóði, ef það verður að lögum. Við 2. umr. var það skýrt tekið fram, að sú upphæð, er kæmi til útborgunar úr landssjóði umfram það, er goldið er eftir eldri lögunum, næmi 3400 kr. á ári. Hér er því um töluverða hækkun að ræða og það er ekki sýnilegt, að hún fari verulega minkandi á næstu árum. Þeir eru ekki margir af núverandi prestum landsins, er geta kallast háaldraðir. Þegar litið er yfir prestatalið í fardögum 1908, sést, að það eru ekki nema 15 prestar svo gamlir, að þeir séu fæddir fyrir 1850. Það má því búast við, að frumvarpið hafi samskonar áhrif á næstu árum, sem það hefir nú í svipinn, svo að téð upphæð 3400 kr. fari ekki fljótlega minkandi. Þó að yngri prestar geti auðvitað dáið, þá eru samt engar sérstakar líkur á, að margir prestar deyi næstu árin. En af því leiðir, að miklu fleiri prestar verða í hærri launaflokkunum. Hvað sem öðru líður er mín afstaða gagnvart frumvarpinu sú, að það sé ekki full ástæða til að breyta lögunum frá 1907. Eg get tekið undir það og gert að mínum orðum, er framsögum. nefndarinnar í þessu máli í neðri deild, Pétur Jónsson, sagði á þingi 1907, er um þá tillögu var að ræða að láta laun presta lækka eftir 10 og 20 ára þjónustu. En þá fórust honum svo orð, að eftir þessari reglu mundi landssjóður borga meira til prestslaunasjóðs, og væri það strax ástæða móti tillögunni. Og sannarlega er það nægileg ástæða til að vera mótfallinn lögum þessum, að þau hækka laun prestanna í heild sinni. Eg segi það ekki, en mér dettur í hug, að úti á meðal þjóðarinnar kynni einhverjum að verða að orði, er hann heyrir sagt frá þessu frumvarpi, að „seint fyllist sálin prestanna“. Yfirleitt er þjóðin mótfallin hækkun á launum embættismanna. Og hún lítur svo á, að launakjör prestanna séu sæmileg.

Hv. framsögum. (Kr. Dan.) hélt því fram, að með þessu væri þjónustualdur presta of hátt áætlaður, 36 ár. Þar til er að svara, að hvorugur okkar getur sannað neitt um þetta atriði. Hv. framsögum. (Kr. Dan.) kannaðist sjálfur við, að það vantaði skjallegar skýrslur, er bygt yrði á í þessu efni. Nefndin hefir komist að þeirri niðurstöðu, að þjónustu aldur presta mætti telja frá 30—36 ár, svo að það er þá ekki svo langt frá því, er mín tillaga byggist á. En að því er kemur til þess, er hv. framsögum. fanst líkindi til, að prestar yrðu skammlífari eftirleiðis en þeir hafa verið til þessa, af því að prestaköllin stækkuðu og yrðu því erfiðari, þá vil eg geta þess í sambandi við þessi ummæli, að þótt prestaköllin séu nú stærri en áður, þá hafa önnur skilyrði breyzt til batnaðar. Samgöngur hafa batnað, svo að hægra er umferðar — og það er ekki lítilsvert í þessu efni. Þá er annað atriði, er hér kemur til greina, og það er, að störfum hefir verið létt af prestunum t. d. að því er snertir fræðslu barna og unglinga. Í heild sinni lengist mannsaldurinn hjá okkur, og eg fæ ekki skilið, að prestar séu nokkur undantekning frá þeirri reglu og sé ekki heldur, að prestastéttin hafi að neinu leyti við slæm kjör að búa eins og nú er komið. Eg býst því við, að þjónustualdur presta lengist fremur en styttist.

Háttv. framsögum. talaði við 2. umr. málsins mjög um handahóf, er kæmi fram í lögunum 1907. Þetta er öfugt. Sé hér um nokkurt handahóf að ræða, þá mætti með fullum rétti kalla það handahóf, að samþ. þetta frv. eins og það nú liggur fyrir.

Það er auðsætt hverjum manni, að kostnaðurinn til að launa prestunum hlýtur að verða talsvert miklu meiri á einu árabili en öðru, nái frumv. fram að ganga. Sumir munu nú segja, að þetta geri ekki svo mikið til, hitt þýði meira, að öll þessi gjöld til prestanna séu eðlileg og sanngjörn. Um það skal eg það eitt segja, að eg get ekki talið núgildandi launalög presta ósanngjörn né óeðlileg. Og hitt finst mér sjálfsagt, að menn vilji vita með vissu, hve mikilli upphæð varið sé alls árlega til launa prestastéttinni og að þessi upphæð sé föst og ákveðin, en ekki tilbreytileg frá ári til árs, eins og hér er farið fram á.

Þegar framsm. nefndarinnar í prestlaunamálinu í n.d. á þinginu 1907 mælti á móti því, að launahækkunin væri miðuð við þjónustuár og með þriðjungaskiftunum, þá sagði hann, að eftir þeim væri alveg „mathematisk“ vissa fyrir því, hve mikið þeir (?: prestastéttin) fá samtals. Og þannig eru lögin, sem nú eru í gildi, þau gefa óyggjandi vissu fyrir því, hve mikið þurfi samtals til launa handa prestastéttinni. Eg þykist þá hafa sýnt fram á, að breytingartillaga mín sé ekki ósanngjörn, frá hvaða sjónarmiði sem er, og vænti eg þess af hinni háttvirtu deild, að hún samþykki hana. Eg gleymdi einu atriði, sem eg ætlaði mér að minnast á, þegar eg talaði um starfsemi presta. Prestar hafa nú sem kunnugt er, samkv. nýju launalögunum, losnað við að innheimta gjöld sín. Sóknarnefndir hafa tekið við innheimtunni. Það var ilt starf, vanþakklátt og óeðlilegt; ekki fæ eg skilið, að þjónustualdurinn muni styttast við þessa breytingu. Sem sagt, nú er þeim óþægindum af þeim létt, jafnframt því, að þeir eru komnir á föst laun. Skal eg svo ekki fjölyrða meira um þetta atriði að sinni, en vænti þess, að háttv. deild, taki á þessari brtill. minni vægum höndum.