06.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (29)

87. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Kristinn Daníelsson:

Ég stend upp vegna þess að ég á breytingartillögur á tveimur þingskjölum, sem ég vildi fara nokkrum orðum um. Þá skal ég fyrst minnast á breytt. á þskj. 479. Þar stendur nafn Jóns Sigurðssonar og er öllum kunnugt, hvert óskabarn þessarar þjóðar hann er, ekki sízt nú, er sá dagur nálgast, er 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa manns. Og það kemur víst engum á óvart, þó að hann sé sérstaklega óskabarn þess héraðs, þar sem hann er fæddur og þar sem menn enn í dag minnast þess með lotningu, að það var þeirra hérað, sem ól þennan mann. Nefndin hefir ekki tekið sem bezt í þessa tillögu mína og háttv. framsm. færði nokkuð afvega. hver tilgangurinn er. Það er beðið um 1500 kr. styrk til þess að reisa Jóni Sigurðssyni minnisvarða á Rafnseyri í sambandi við hátíðarhald þar í 100 ára minningu hans 17. júní. Þessu vil ég mæla með sem bezt og vildi óska, að ég hefði málið betur á valdi mínu og betri orða val en ég hefi, til þess að tala fyrir þessu máli. Háttv. framsm. vildi snúa þessu á þá leið, að hér væri aðallega verið að fara fram á fé til að drekka það út, eða eitthvað á þá leið féllu orð hans. Það kann að líta nokkuð þannig út, þar sem minnisvarðinn sjálfur á ekki að kosta nærri svona mikið fé eins og gert er ráð fyrir til minnisvarðans og hátíðahaldsins í sameiningu. En ég vil benda á. að hátíðarhaldið stendur í svo nánu sambandi við minnisvarðann, að annað kemur ekki að gagni nema hitt fylgi með. Minning Jóns Sigurðssonar á að vera fólgin í hvorutveggju í sameiningu. Það er viðurkent, hve mikla þýðingu það hefir að draga fram minningu afbragðsmanna hverrar þjóðar, öðrum til hvatningar til alls góðs. Og það eru einmitt hátíðahöldin, sem hafa mesta þýðingu að þessu leyti. Eg hygg, að okkur, sem munum þjóðhátíðirnar 1874, finnist alla æfi að þeir viðburðir standi sem nokkurs konar minnisvarði á lífsvegi okkar. Líka þýðingu mundi þetta hátíðarhald hafa fyrir fólkið í því héraði, sem hér er um að ræða. En það er ómögulegt að reisa minnisvarða og halda hátíð á þessum stað, nema með töluvert miklum undirbúningi og tilkostnaði. Staðurinn er afskektur og þarf að kosta miklu til aðflutninga, ef hátíðarhaldið á að geta farið sæmilega fram og orðið samboðið því fyrirtæki, sem um er að ræða. — Eg vona að ég hafi gert það ljóst, að þó að sjálfur minnisvarðinn kosti ekki alla þessa upphæð, þá verði ekki komist af með verð hans eitt, heldur þurfi töluvert fé til viðbótar, ef minningarathöfnin í heild sinni á að fara sómasamlega úr hendi. Og ég vona að háttv. deild líti á þetta með velvildaraugum. Eg tek það fram að héraðsbúar eru sjálfir búnir að leggja mikið á sig. Þeir hafa safnað samskotum og ætla þar að auki að leggja nokkurt fé til hátíðahaldsins úr sveitasjóðum og sýslusjóði, og eru þó miklir örðugleikar á því vegna þess að það, er afarþröngt í búi í þessum sjóðum aðallega fyrir mjög mikinn tilkostnað til símalagninga. Eg vil ennfremur benda á það að þó að þingið verði við þessari fjárbeiðni, þá er það ekki hættulegt í þá átt að slíkar fjárbeiðnir kynnu að fara að tíðkast, ef fordæmið er gefið. Því getur ekki verið til að dreifa. Þessi maður er svo sérstæður í sögu landsins og þessi 100 ára minning svo sérstæð, að það er varla hægt að búast við að slíkt komi fyrir aftur, jafnvel ekki að öðrum 100 árum liðnum, því að minningarnar fyrnast. — Eg vona að háttv. deild samþykki þessa tillögu og skal ekki fara fleiri orðum um hana.

Þá skal eg stuttlega víkja að breytt. minni á þskj. 481, að sumarið 1911 verði lagður talsími frá Ísafirði til Suðureyrar í Súgandafirði. Eg skal benda á að þetta pláss hefir átt von á að fá síma jafnvel fyr en þetta. Háttv. framsögum. sagði að héraðsbúar hefðu að eins farið fram á að fá símann á fjárhagstímabilinu 1912—13. Eg skal játa að það er mikil bót að eiga hann vísan þá, ef hann fæst ekki í sumar. En eg hygg að þetta sé sprottið af misskilningi. Meining héraðsbúa mun hafa verið að fara fram á að fá símann nú í sumar, en þeir hafa ekki athugað að til þess þurfti fjárveitingu á aukafjárlögum og hafa álitið nægilegt að biðja um fjárveitingu til símans á næstu fjárlögum. Þetta er lítið hérað en í afarmiklum uppgangi. Þar er mikill atvinnurekstur, fiskveiðar, verzlun og ýms blómleg fyrirtæki, sem fiskiveiðar ávalt eru grundvöllurinn undir. Þetta pláss hefir því mikla þörf fyrir síma og fremur mörgum öðrum, sem hafa verið á undan. Enn fremur hefir þessi sími mikla þýðingu vegna þess, að það er oft hægt að fá beitu í Súgandafirði, þegar beituskortur er annarstaðar. Eg hefi hér bréf í höndum, þar sem er sagt frá því, að skip hafi lagt út beitulaus, en hefðu getað fengið nóga síld á Súgandafirði, ef hægt hefði verið að gera viðvart í síma. Eg skal benda á það, að þó alþingi samþykki þessa fjárveitingu, þá er ærið hæpið að héraðsbúar hafi gagn af henni. Það er gert ráð fyrir að síminn kosti 9300 krónur og héraðsbúar sjálfir leggi til 3100 af þeirri upphæð. En svo stendur á, að ef héraðið á að leggja til þessa fjárhæð, þá verður þessi litli hreppur að gera það einn, því að eins og eg tók fram áðan, er orðið svo þröngt í búi í sýslusjóði, að við það er ekki bætandi. Ef þessi eini litli hreppur vill vinna til að leggja til svona mikla upphæð, þriðjunginn af öllum kostnaðinum, þá sýnir það bezt, hve mikla nauðsyn þeir telja á að fá símann. Eins og eg gat um áðan, gat þetta pláss þegar fyrir löngu gert sér von um að fá þennan síma. Því til sönnunar skal eg með leyfi hæstv. forseta lesa upp part úr bréfi frá hreppsnefndaroddvitanum í þessum hreppi:

„Samkvæmt bréfi frá stjórnarráðinu ds. 30. nóv. 1906, sem sýslumaður á Ísafirði skrifaði hreppsnefndinni hér, var svo að sjá, sem þessi fjörður ætti að fylgjast með, er símalagningin færi fram á Vestfjörðum. En úrslitin urðu þau, að engan fengum við símann. Hitt fengum við, að taka hlutfallslegan þátt í símakostnaðinum við hina hreppa sýslunnar . . . .“

Þeir hafa þannig ár eftir ár verið að vona að síminn yrði ný lagður þetta árið og þetta árið, en jafnan brugðist. Nú vil eg skjóta því til háttv. deildar, hvort henni þykir ekki rétt og sanngjarnt að verða við óskum héraðsbúa í þessu efni.