20.02.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

171. mál, lögaldursleyfi

Lárus H. Bjarnason:

Það er ekki nýtt bragð hjá sumum drengjum þetta, að segja: „Það getur þú sjálfur verið“. Eg sagði, að frumv. stjórnarinnar væri hégómi og eg stend við það. — Hv. ráðherra fer að dæmi nefndra drengja er hann kallar mína ræðu hégóma Hæstv. ráðherra sagði, að það þýddi ekki að bera stjórnarfrumvörp upp á öðru máli en dönsku, því að annað skildist ekki þar. Hér hefir þá ráðherra játað sjálfur, að stjórnarfrumvörpin hafi verið borin upp á dönsku í ríkisráðinu í þetta sinn. Eg vissi það raunar vel áður, að svo var, því að frumvörpin voru til skamms tíma alls ekki til á öðru máli en dönsku, og aðstoðarmenn stjórnarinnar og Ísafoldarliðið hafa verið að keppast við að leggja þau út á íslenzku nú fyrir þingið og um þingbyrjun. Fyrverandi ráðherra bar stjórnarfrumvörpin undir konung á íslenzku og lagði með danska þýðingu. Og maður, sem gumar jafn mikið um sjálfstæði og hv. ráðherra, hefði sízt átt að bregða út af þeirri venju, sem þegar var komin á.

Ráðherra veit þó víst, að samkv. l. 18. sept. 1891 á texti íslenzkra laga að vera einn og íslenzkur, og þó að þetta sé ekki einnig lögboðið um frumvörp til íslenzkra laga, þá virðist það vera sjálfsagt, að sama gildi um þau, enda ógreiðara með nýtýzku aðferðinni fyrir ráðherra að ábyrgjast það fyrir konungi, að hin síðar gerða íslenzka þýðing á frumvörpunum sé í fullu samræmi við danska textann, sem einn var lagður fyrir konung.

Þá sagði hæstv. ráðherra, að á lagaskólanum færi að eins fram manuduction í dönskum lagakenslubókum. Þetta sýnir að hann er jafn ókunnugur um þessa landsstofnun sem aðrar; kunnugri vita, að þar liggur nú fyrir því nær heil grein íslenzkrar lögfræði frumsamin, nfl. ríkisréttur Íslands. Sömuleiðis er frumsamin réttarsaga landsins, nærri fullgerð. Og enn hefir yngsti kennari skólans samið og gefið út íslenzkan sjórétt. Eg hygg að meira verði varla heimtað með sanngirni af jafn ungum skóla. Það eru til eldri skólar. sem hafa ekki komið einni einustu línu í fræðigreinum sínum á íslenzka tungu. Ráðherra væri nær að líta eftir þeim.

Eg gat þess áðan, að eg vildi ekki fella frumvarpið af því að hægt mundi vera að lagfæra það hér í deildinni. Það er ekki ómögulegt, að hv. þm. Borgfirðinga og mér eða öðrum hv. deildarmönnum geti lánast að búa til eitthvað betra en þetta stjórnarfrumvarp, og því vil eg styðja það, að málið gangi til annarar umræðu og að nefnd verði skipuð í það að þessari umræðu lokinni.